« B day | Heim | Fjármálavit »

mar
08
2009
Strimlalestur

Ein tegund af fólki hefur stundum pirrað mig til margra ára. BonusOg það eru þeir sem lesa allan strimilinn sinn við kassann, helst tvisvar. En hvort sem að þú ert að spá í hvort dós af bökuðum baunum kostar 58 eða 59 krónur eða tékka hvort þú sért að greiða fyrir eitthvað sem þú ert ekki að kaupa er klárlega rétt að rúlla .a.m.k. lauslega yfir strimilinn. Það varð ég á þreifanlega var við í gær. Ég tek alltaf strimil í verslunum þegar ég versla, nema helst ef ég er að kaupa eitthvað verulega smálegt. Þó ég lesi hann ekki upp til agna renni ég oft augunum yfir hann svona á meðan ég rölti frá kassanum, rétt til að tékka á hvort eitthvað stingi í augun. Málið er að nú hefur verðlag verið breytilegt og margar vörur að hækka verulega. Því hefur mér stundum þótt verðið á kassa vera orðið mun hærra en ég bjóst við. Mér brá því nokkuð í gær þegar ég var að versla í Bónus. Nokkrir smálegir hlutir Þegar búið var að skanna góssið var ég rukkaður um 7.462matarkyns og hundamatur sem kostar 798 kr. alls 12 hlutir. Að hundafóðrinu undanskyldu var dýrasti hluturinn á 392 fyrir utan einhvern afslátt. Þegar búið var að skanna góssið var ég rukkaður um 7.462 kr. Í sjokki og með semingi afhenti ég kortið og bölvaði í hljóði þessum verðhækkunum og velti fyrir mér hvað ég hefði nú verið að kaupa svona dýrum dómum. Þegar strimillin kom í mínar hendur leit ég á hann og sá strax að ég hafði verið rukkaður um 7 poka af hundfóðri. Sem sagt ofrukkað um 4.788 kr. Að sjálfsögðu var það leiðrétt án vandamála en það hefði verið óheppilegt að vera kominn heim og átta sig þá.

Komment (2)

Maður hefur samt lent í því að vera rukkaður tvisvar um sama hlutinn og þap er pirrandi

Algjörlega. Því er gott að vera örlítið vakandi :)