Það er ákveðið merki held ég um hvað maður er orðinn
gamall, þegar talið er í tugum ára hvenær maður gerði hitt og þetta. Tala nú ekki um ef það gerðist eftir að maður komst á áfengiskaupa aldurinn. Svo er það nú með blessaðann bjórdaginn. Í dag eru 20 ár liðn frá því að bjósala var lögleidd aftur á Íslandi eftir 74 ára bjórbann. Miðvikudaginn 1. mars 1989 rétt um hádegis bil eða svo, stóð ég á tröppunum við barnafataverslunina í Ólafsvík sem einnig hústi ÁTVR og beið þess að ríkið opnaði. Tilgangurinn var að sjálfsögðu að versla bjór. Ef mér skjátlast ekki var það hinn þýski Löwenbräu bjór sem varð fyrir valinu.
Bjór, meiri bjór
Ljótu hálfvitarnir








