Þegar ein kýrin mígur er annarri mál. Málsháttur þessi sprettur upp í huga manns við yfirferð á bók nokkurri kennda við andlit. Facebook. Nú er blessað fésið svo sem ágætt útaf fyrir sig, en því miður eru gallarnir fleiri (kannski ekki stærri) en kostirnir. Stærstu og algengustu gallarnir eru svo kölluð "Applications" og "Groups". Til að mynda er allt of auðvelt og allt of aðgengilegt að búa til þessi Applications sem þýðir að gríðarlegt offramboð er af of auðvelt er að búa til grúbbu um nákvæmlega ekkert þeim, og einnig er of auðvelt er að búa til grúbbu um nákvæmlega ekkert, þá meina ég ekkert. Þessir gallar eru svo stórir að það er efni í sér pistil, því þessi átti að vera um aðra plágu sem tröllríður þessari blessaðri fésbók. Að tagga vini sína í notes og á myndum af herramönnunum. Hér áður fékk maður allskonar bull til að áframsenda í tölvupósti, kjánalega spurningalista sem vissulega einhverjir hafa gaman að. Bara ekki ég. Nú er búið að yfirfæra þetta á "fésið" og er vart þverfótað fyrir spurningalistum sem annar hver maður er taggaður á eða maður sjálfur. Já og helst tvisvar á nákvæmlega sama listann. Voða sniðugt. Þetta apa svo allir hver eftir öðrum. Og vitleysan er orðin
svo mikil að fólk sem býr innan sömu veggja er að senda hvort öðru slíka lista, eins og það geti ekki bara spurt hvort annað ef því vantar að vita eitthvað. Klárt dæmi um að netið og rafrænir samskiptamiðlar eru að taka meira og meira yfir venjulegar samræður milli fólks í sama rými. Og ekki er öll vitleysan eins. Herra mennirnir, fígúrur úr gamalkunnum barnabókum og teiknimyndum fyrir börn eru að verða nýjasta ruglið. Um að gera að hala niður einhverri mynd með þeim kjánum senda á fésið og tagga alla vini sína á hana. Æðislega klárt.









Komment (1)
En þetta er það sem fésbókin er, tímaþjófur og heilafroða.
Ekki hangir fólk þarna til að eiga í uppbyggilegum samræðum og/eða skemmtilegum leikjum.
Ég tek alveg þátt í að gera notes ef mér finnast þau skemmtileg en ég tagga engan í þeim, fólki er full frjálst að gera þá sjálft ef því hugnast.
En í miðjum leiðinlegum fyrirlestri eða þegar ég á að vera að gera ritgerð þá er fésbókin afbragðs afþreying og oft á tíðum fyndin líka :-)
Þetta ritaði Nornin | 24.02.09 13:22