Í síðastliðnum desember kom út "Ljósár" Árbók Íslenskra áhugaljósmyndara 2008 sem er að sjálfsögðu ljósmyndabók. Þar sem ég hef nú verið að fikta við að taka myndir ákvað ég að taka þátt í þessari bók og eru 2 myndir frá mér í henni.
Þetta er nokkuð vönduð bók með myndum eftir 121 áhugaljósmyndara, og er að koma út í fjórða sinn

Efnisyfirlit
Þetta eru nú kannski ekki alveg mínar allra bestu myndir, en vonandi ekkert afleitar. Ég hafði upphaflega æltað mér að senda aðrar myndir í bókina, en ritstjórnin kom með uppástungu um breytingu og ég ákvað fara að þeirra tillögu.
Hér er sýnishorn af myndunum mínum.